Velkomin á vefinn, www.taugaverkir.is. Þessi vefur er á vegum Pfizer á Íslandi, Hörgatúni 2, 200 Garðabæ, Íslandi. Sími: 535-7000
Við hjá Pfizer, lyfjafyrirtækinu sem stendur að þessari vefsíðu gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess að vernda persónulegar upplýsingar sem safnað verður um þá sem heimsækja vefsíðu okkar. Okkur er í mun að virða einkalíf þeirra sem sækja vefsíðuna. Hér fyrir neðan getur þú lesið um hvernig upplýsingarnar sem sjálfkrafa er safnað eru meðhöndlaðar, hvernig þær eru notaðar og nákvæmlega um stefnu okkar varðandi söfnun og geymslu persónuupplýsinga með tilliti til laga um persónuvernd.
Þegar fólk heimsækir vefsíðuna skráir tölvan ýmsar upplýsingar í svokallaðar “cookies” og vistar á tölvunni. Þessar upplýsingar eru ekki sendar til baka nema viðkomandi fari aftur inn á vefsíðuna. Upplýsingarnar fela í sér hvernig og hvenær vefsíðan er heimsótt og hve margir heimsækja hana. Með þeim upplýsingum sem við söfnum með þessari tækni vonumst við til að bæta vefsíður okkar. Jafnframt söfnum við upplýsingum sem varða þig eins og auðkenni tölvunnar (IP) og lénsheiti. Við söfnum þessum upplýsingum til að geta aðlagað það sem við höfum upp á að bjóða, þannig að upplýsingarnar verði aðgengilegri og vefsíðan verði auðveldari í notkun. Jafnvel þó að við gerum þær varúðarráðstafanir sem hægt er að ætlast til innan hæfilegra marka til að vernda persónuupplýsingar sem safnað er um vefsíðuna, skaltu gera þér grein fyrir að það er alltaf viss áhætta að senda upplýsingar á veraldarvefinn. Við getum ekki fullkomlega ábyrgst að vefsíðan sé örugg fyrir ólöglegu athæfi eða vefþrjótum.
Pfizer vinnur á grundvelli gildandi laga um persónuvernd. Aðeins Pfizer og samstarfsaðilar þess ásamt þeim aðilum sem koma að söfnun upplýsinganna á vegum Pfizer hafa aðgang að upplýsingum um þig. Við áskiljum okkur rétt til að nota þjónustu fyritækis þriðja aðila til að vinna að söfnun upplýsinga og úrvinnslu þeirra eða til að þróa efni jafnt sem forrit vefsíðunnar. Upplýsingarnar um þig verða á engan hátt notaðar af fyrirtæki þriðja aðila og verða því hvorki látnar af hendi í söluskyni né í öðrum tilgangi.Okkur ber skylda til að upplýsa þig um, að þó að ólíklegt sé gæti Pfizer vegna dómsúrskurðar eða vegna lögfræðilegrar kröfu þurft að afhenda trúnaðarupplýsingar. Ef til slíks kemur munum við leitast við að tikynna þér um tilvikið svo framarlega sem hendur okkar eru ekki bundnar af lagalegum ástæðum.
Ef þú hefur sent persónugreinanlegar upplýsingar um vefsíðu okkar og vilt láta eyða þeim upplýsingum ert þú beðin/beðinn um að tilkynna okkur um þá ósk þína, hér fyrir ofan má sjá upplýsingar um póstfang Pfizer á Íslandi. Þú getur einnig farið fram á aðgang að upplýsingum um sjálfa/sjálfan þig sem Pfizer geymir og þú getur beðið um leiðréttingar eða breytingar á persónuupplýsingum um þig.
Sem þjónusta við vefsíðugesti okkar eru gefnir upp tenglar á aðrar vefsíður (sem ekki tilheyra Pfizer), persónuverndarstefna eigenda þeirra getur verið allt önnur en stefna Pfizer. Þú þarft sjálf/sjálfur að kynna þér hver stefna þeirrra er. Pfizer gæti hvenær sem er breytt persónuvendarstefnu sinni. Vinsamlegast athugaðu reglulega á vefsíðunni hvort einhverjar breytingar hafi orðið.
Pfizer ber ekki ábyrgð á efnisinnihaldi vefsíðna sem ekki tilheyra Pfizer. Smelltu hér til að lesa skilyrðin.