Svaraðu spurningalista um verki af óþekktum toga
Að viðurkenna fyrir sjálfum sér að maður sé með langvinna verki er fyrsta skefið til að ná stjórn á verkjunum. Þegar þú getur lýst verkjunum greinilega og af nákvæmi getur verið auðveldara að ræða um þá við aðra. Það hjálpar þér að átta þig á verkjunum og auðveldar þér að ræða um vandamálið við lækni.
Ráðfærðu þig við lækni um hvernig best er að fást við verkina.
Þegar þú hefur áttað þig á hvernig verkirnir eru skaltu ræða um þá við lækni. Þú gætir þegar hafa rætt þetta við lækna, en ef núverandi meðferð dregur ekki úr verkjunum skaltu leita til læknis og ræða á nýjan leik um vandamálið. Þér gæti verið ávísað annarri meðferð, vísað til verkjasérfræðings eða á sérstaka verkjameðferðardeild.
Taugaverki þarf að meðhöndla lengi
Þar sem taugaskemmdir ganga sjaldnast til baka gætir þú verið með verki til langs tíma. Nútíma verkjameðferð getur dregið verulega úr verkjunum sem þú ert með. Læknir getur veitt þér ráðleggingar varðandi meðferð og tækni sem ætti að geta hjálpað þér til að taka virkan þátt í hversdagslífinu.