Svaraðu spurningalista um verki af óþekktum toga
Um leið og þú hefur áttað þig á að þú er með langvinna verki skaltu fara til læknis. Undirbúðu þig fyrir að lýsa verkjunum sem þú færð og hvar í líkamanum þeir eru. Það gæti hjálpað þér að svara spurningunum á síðunni. „Hvernig verk ertu með“ og prenta síðan út svörin og hafa blaðið meðferðis og sýna lækninum þegar þú ferð til hans. Það gæti líka hjálpað lækninum að sjúkdómsgreina þig ef þú segðir lækninum:
- Hvenær þú fékkst verkinn fyrst
- Hvort þér finnist eins og verkurinn leiði eða dreifist
- Hversu slæmur verkurinn er
- Hversu oft þú færð verkinn
- Hvort verkurinn sé misslæmur
Þú ættir einnig að segja honum frá hvort verkurinn hafi áhrif á atvinnu-, félags- eða einkalíf þitt. Með því að gefa skýra og nákvæma lýsingu á þeim einkennum sem þú hefur og áhrifum sem þau hafa á líf þitt er læknirinn betur í stakk búinn til að gera rétta sjúkdómsgreiningu og ávísa þeirri meðferð sem á best við í þínu tilviki.
Ekki reyna að glíma alein/aleinn við verki
Haltu áfram að umgangast vini og vandamenn. Ræddu opinskátt við þá um verkina sem þú ert með þannig að þeir viti hvaða áhrif verkirnir hafa á þig og hvort það sé eitthvað sem þeir geti gert til að hjálpa þér. Stuðningshópar sjúklinga geta hugsanlega einnig aðstoðað þig. Fólk sem þjáist og verður fyrir röskun vegna verkja getur rætt vandamál sín, hlustað á ráðleggingar sérfræðinga og fengið tækifæri til að spyrja spurninga og fræðast betur um taugaverki.
Fáðu ráðleggingar um æfingar og aðra tækni sem hugsanlega gæti hjálpað þér.
Þó að læknirinn kjósi ef til vill að ávísa þér lyfi við verkjunum þá eru önnur meðferðarúrræði sem hann gæti hugsanlega ávísað, t.d.:
- Líkamleg meðferð (t.d. hitameðferð)
- Sjúkraþjálfun (æfingar til að styrkja og lengja vöðva)
- Raförvun
- Nálarstungur
- Æfingar og slökunartækni
Með því að halda þér í líkamlegri þjálfun getur þú komið í veg fyrir að vöðvarnir rýrni og styttist, sem getur aukið enn frekara á vandamálin sem verkirnir valda. Þú skalt líka lyfta þér upp! Dreifðu huganum frá verkjunum með því að fara út að borða, fara í kvikmyndahús, stunda félagslíf og skemmta þér.
Langvinnt ástand krefst langtíma meðferðar.
Taugaverkur orsakast af taugaskemmd. Vegna þess að taugaskemmd gengur sjaldan til baka er hugsanlegt að verkirnir sem þú ert með eigi eftir að vara lengi. Oft má hins vegar koma í veg fyrir langvarandi þjáningu vegna taugaverkja. Það sem eftir er ævinnar gætir þú þurft að fylgja meðferðaráætlun sem læknirinn hefur ávísað þér, en það gæti dregið það mikið úr verkjunum að þú yrðir fær um að taka virkan þátt í hversdagslífinu.