www.taugaverkir.is  
banner
Velja
Hvað er taugaverkur?
Hvernig verk ertu með?
Ráðfærðu þig við lækni
Við erum hér til að hjálpa
Að taka stjórnina
Úrræði
Verkjatilfelli

Notkunarskilmálar

Velkomin á vefsíðu um einkenni taugaverkja hjá sjúklingum. Vefsíðan tilheyrir lyfjafyrirtækinu Pfizer Limited („Pfizer“). Upplýsingarnar sem koma fram á vefsíðunni eru ætlaðar til almennrar fræðslu og er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir ráðleggingar lækna eða annars hæfs fólks í heilbrigðisstéttum.

Vinsamlegast lestu og íhugaðu skilyrði fyrir notkun, áður en þú ferð inn á vefsíðuna og notfærir þér hana. Með því að fara inn á eða nota vefsíðuna, staðfestir þú að hafa lesið, skilið og samþykkt skilyrði fyrir notkun hennar. Ef þú samþykkir ekki skilyrði fyrir notkun hennar þá hefur þú ekki leyfi fyrir aðgangi að henni. Pfizer gæti hugsanlega breytt aðgangsskilyrðum, þú ert því vinsamlegast beðin/beðinn að athuga skilyrði fyrir aðgangi að vefsíðunni reglulega, þar sem allar breytingar taka gildi um leið og þær hafa verið færðar inn á vefsíðuna.

  1. Notkun vefsíðunnar. Aðgangur og notkun á þeim upplýsingum sem fram koma á vefsíðunni er háður eftirfarandi skilyrðum. Þú samþykkir að fara ávallt að lögum þegar þú notar og ferð inn á vefsíðuna. Þú samþykkir jafnframt að þú munir ekkert gera sem eyðileggur, truflar, kemur í veg fyrir aðgang, stöðvar aðgang eða spillir fyrir að vefsíðan virki sem skyldi eða kemur í veg fyrir að aðrir notendur hafi gagn og ánægju af notkun þessarar vefsíðu.
  2. Innihald. Þú samþykkir að aðgangur og notkun vefsíðunnar er á þína eigin ábyrgð. Pfizer getur bætt við, breytt eða eytt efni af heimasíðunni hvenær sem er að eigin geðþótta. Pfizer mun leitast við, innan hæfilegra marka, að veita nákvæmar upplýsingar og uppfæra þær en ábyrgist ekki eða skuldbindur sig til eða lýsir yfir að þær séu nákvæmar, uppfærðar samkvæmt nýjustu fyrirliggjandi upplýsingum, gæði þeirra séu fullnægjandi eða þær hæfi tilgangi. Pfizer samstarfsaðilar þess eða aðilar sem standa að hönnun, gerð eða hafa umsjón með heimasíðunni bera ekki ábyrgð á hvers konar missi, tjóni eða kostnaði hvort sem það er vegna samninga, skaða (þ.m.t. vanræksla) eða annars sem hlýst af að treysta þeim upplýsingum sem fram koma á vefsíðunni. Það sama á við um aðgang, notkun eða ef aðgangur er ekki mögulegur eða ef um einhverjar villur eða yfirsjónir er að ræða. Þessar takmarkanir eiga einnig við um hvers kyns missi, tjón eða kostnað sem hlýst af völdum vírusa í tölvubúnaði, hugbúnaði eða öðrum gögnum við notkun vefsíðunnar
  3. Trúnaður. Pfizer virðir einkalíf þeirra sem notfæra sér vefsíðuna. Vinsamlegast lestu um stefnu okkar varðandi trúnað, sem útskýrir þau réttindi sem þú hefur og hvernig Pfizer getur notað persónulegar upplýsingar (t.d. með notkun „cookies“) sem því berst um vefsíðuna.
  4. Þriðji aðili og tenglar. Vefsíðan getur innihaldið tengla eða tilvísanir á aðrar vefsíður, sem tilheyra þriðja aðila, sem eðli málsins samkvæmt Pfizer hefur enga stjórn yfir. Þessir tenglar eru fyrst og fremst gefnir upp til þæginda fyrir notendur. Á sama hátt er hægt að tengjast þessari vefsíðu með tengli á vefsíðu þriðja aðila, sem Pfizer hefur enga stjórn yfir. Pfizer ábyrgist ekki eða skuldbindur sig til eða lýsir yfir að upplýsingar á slíkum vefsíðum séu nákvæmar, uppfærðar samkvæmt nýjustu fyrirliggjandi upplýsingum, gæði þeirra séu fullnægjandi eða þær hæfi tilgangi og er ekki bótaskylt fyrir tjóni, skemmdum eða hvers konar kostnaði sem hlýst af slíkum upplýsingum. Þó að gefnir séu upp tenglar á þessari síðu gefur það ekki til kynna að Pfizer samþykkt innihald þeirra eða mæli með þeim.
  5. Læknisfræðilegar upplýsingar. Vefsíðan getur innihaldið upplýsingar um ýmsa sjúkdóma og meðferð þeirra. Upplýsingarnar eru almenns eðlis og er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir ráðgjöf hjá lækni eða öðru hæfu heilbrigðisstarfsfólki. Þú átt ekki að nota upplýsingarnar á vefsíðunni til að greina líkamlegt ástand eða sjúkdóma hvorki hjá þér né öðrum. Þú skal ávallt leita til læknis.
  6. Upplýsingar sem ekki eru trúnaðarupplýsingar. Samkvæmt stefnu okkar varðandi trúnað eru öll samskipti eða annað efni sem sent er rafrænt og með pósti, t.d. spurningar, athugasemdir og tillögur, ekki álitin og verða ekki álitin trúnaðarupplýsingar og Pfizer hefur engum skyldum að gegna með tilliti til þeirra. Pfizer er frjálst að notfæra sér hugmyndir, hugtök, kunnáttu eða tækni sem felst í slíkum samskiptum í hvers kyns tilgangi m.a., en ekki takmarkað, við þróun, framleiðslu og markaðsetningu vöru.
  7. Hugverkaréttindi. Pfizer á allan höfundarrétt, einkaleyfi, gagnagrunnsréttindi, vörumerki, hönnun, þekkingu og trúnaðarupplýsingar (hvort sem þær eru skráðar eða ekki) og öll önnur hugverkaréttindi á þessari vefsíðu. Einungis má afrita efni vefsíðunnar til einkanotkunar sem er ekki í markaðsskyni og jafnframt að því tilskyldu að einkaréttur og annar eignaréttur sé virtur og að það verði ekki endurafritað, endurgefið út eða því endurdreift. Einungis er leyfilegt að afrita efni til einkanota. Það má því ekki, afrita, sýna, hlaða niður, dreifa, breyta , endurgera, endurútgefa eða endursenda upplýsingar, texta eða skjöl á þessari vefsíðu eða einhvern hluta þeirra rafrænt eða á prenti eða nota þau í annan gagnagrunn, nema að fengnu skriflegu leyfi frá Pfizer. Jafnframt er tekið fram að nafn Pfizer og kennimerki eru skrásett vörumerki og má því ekki nota þau án skriflegs leyfis frá Pfizer nema um einkanotkun sé að ræða. Misnotkun á vörumerkjum Pfizer og öðru efni er bönnuð og gæti varðað einkaréttarlög, vörumerkjalög og/eða önnur lög. Vinsamlegast athugið að Pfizer ver hugverkaréttindi sín virkt og af fullum þunga innan ramma laganna.
  8. Annað. Ef eitthvað af ofangreindum ákvæðum reynist ólöglegt, ógilt eða ógerningur að framfylgja, munu þau ákvæði felld niður án þess að það hafi áhrif á önnur ákvæði.
Brunaverkur/sviði
Sársaukafullur fiðringur
Stingur
Eins og rafstuð
Kul