www.taugaverkir.is  
banner
Velja
Hvað er taugaverkur?
Hvernig verk ertu með?
Ráðfærðu þig við lækni
Við erum hér til að hjálpa
Að taka stjórnina
Úrræði
Verkjatilfelli

Við erum hér til að hjálpa

Svaraðu spurningalista um verki af óþekktum toga

Um það bil 1 af hverjum 5 Evrópubúum þjáist af langvinnum verkjum. Með því að taka þátt í stuðningshóp fyrir sjúklinga getur þú deilt reynslu þinni og lært af öðrum með sama vandamál og af sérfræðingum á þessu sviði. Þegar þú færð tækifæri til að ræða, skilja og taka virkan þátt í meðferðinni eru meiri líkur á að hún beri árangur

Deildu áhyggjum þínum með fólki sem á við sams konar vanda að stríða
Þátttaka í einhverju af eftirfarandi samtökum gæti hjálpað þér til að skilja af hverju verkurinn stafar og að fá þá meðferð sem á best við. Fólk í þessum samtökum gæti aðstoðað þig með því að veita þér tækifæri til að ræða vandamál þín og með því að deila ráðleggingum sérfæðinga um verkjameðferð.

 Samtök Sykursjúkra

 

Samtök Sykursjúkra
Hátúni 10b
105 Reykjavík 

Sími 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is

 

 

 

MS Félag Íslands 
Slettuvegur 5,
103 Reykjavik

Sími: 568 8620
Tölvupóstur:
msfelag@msfelag.is 
 

Þessir tenglar eru eingöngu gefnir upp í upplýsingaskyni, ætlunin af hálfu Pfizer er ekki að mæla frekar með einum samtökum en öðrum.

Reyndu ekki að glíma alein/aleinn við verkina
Ræddu um verkina við vini og vandamenn til að minna þá á að verkirnir eru raunverulegir. Ef þú lætur þá vita munu þeir skilja hvaða áhrif verkirnir hafa á þig og þeir gætu hugsanlega fundið einhverjar leiðir til úrbóta.

Hvers vegna ættirðu að halda áfram að þjást?
Verkirnir sem þú ert með eru raunverulegir og með réttri hjálp mætti á árangursríkan hátt draga úr þeim. Pantaðu tíma hjá lækni og lýstu einkennunum sem þú ert með samkvæmt leiðbeiningunum sem gefnar eru upp á þessari vefsíðu. Hann getur rætt við þig um meðferðarmöguleika.

Brunaverkur/sviði
Sársaukafullur fiðringur
Stingur
Eins og rafstuð
Kul